Margar ábendingar um fóðurlaus hross

Héraðsdýralæknum berst nú fjöldi ábendinga um hross sem híma fóðurlaus í girðingum þar sem enga beit er að hafa. Á vef yfirdýralæknis eru umráðamenn hrossa hvattir til að bregðast við og útvega hrossunum fóður eins og skylt er skv. landslögum.

Á vefnum segir, að bændur og aðrir umráðamenn útigangshrossa séu beðnir að huga vel að hrossunum nú þegar víða eru jarðbönn og hart í ári. Nauðsynlegt sé að gefa útigangi við þessar aðsæður, sérstaklega fylfullum og mjólkandi hryssum og ungviði. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert