Æfingabúðir?: Pólitísk tengsl „mýta“

Háskóli Íslands.
Háskóli Íslands. Árvakur/Kristinn

Síðari dagur kosninga í Háskóla Ísland í Stúdendaráð og Háskólaráð er í dag. Tveir listar bjóða fram að þessu sinni: Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, og Röskva, samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands.

Pólitísk tengsl „bara mýta“

,,Það að Röskva tengist vinstri flokkunum og Vaka þeim hægri er bara gömul mýta,“ segir Helga Lára Haarde, formaður Vöku, og blæs á það að sjálfstæðismenn í röðum stúdenta krossi við Vöku og samfylkingarfólk við Röskvu. Hún segir að Röskva skilgreini sig kannski frekar sem vinstri lista en Vökulistinn sé hins vegar þverpólitískur.

Helga Lára segir að annað sé ekki heppilegt því að þarna sé verið að erjast fyrir hagsmunum stúdenta og sú barátta sé ekki hægra eða vinstra megin. Enda sé þeim tilmælum beint til Vökuliða að þeir starfi ekki í öðrum pólitískum hreyfingum á meðan þeir séu í Vöku. ,,Ef fólk vill tengja sig ákveðnum flokki þá eru ungliðahreyfingar flokkanna betur fallnar til þess en stúdentapólitíkin,“ segir hún.

Þrátt fyrir þessar fullyrðingar er samt ákveðinn þungi í flæði fólks frá Vöku yfir í Sjálfstæðisflokkinn og viðurkennir Helga að svo sé.

Lilja Guðrún Jóhannsdóttir, stjórnarmaður í Röskvu, tekur í sama streng. „Við leggjum áherslu á jafnrétti allra til náms og mögulega telst það vinstra megin en við skilgreinum okkur ekki sem vinstri flokk,“ segir hún.

Báðar fylkingar þvertaka fyrir að nokkur samvinna sé við stjórnmálaflokkana.

Úrelt eða þrautreynt

Eingöngu nemendur við Háskóla Íslands nota framboðslistafyrirkomulag við val á fulltrúum í stjórn samtaka nemenda. Báðir talsmenn segjast mjög ánægðir með ríkjandi fyrirkomulag og hafa engan áhuga á að breyta því. Það sé ákveðin hagræðing í þessu þar sem það væri kostnaðarsamt fyrir hvern og einn að standa í kosningabaráttu og stúdentar séu að auki frekar einsleitur hópur sem hafi svipuð baráttumál.

Síðast en ekki síst fari reynslan ekki úr skólanum þegar fólk hættir. ,,Við lítum líka til þess að þetta er mun betra fyrir minni deildir, ef þetta væru einstaklingskosningar myndi fólk frá stærri deildunum ráða ríkjum í Stúdentaráði á kostnað hinna.“

Í hnotskurn
Menn sem nýlega voru áberandi í átökum í borgarstjórn voru í stúdentapólitík. Björn Ingi Hrafnsson var í Stúdentaráði fyrir Röskvu 1997-1999. Gísli Marteinn Baldursson sat í SHÍ fyrir Vöku 1994-1996. Dagur B. Eggertsson var í SHÍ fyrir Röskvu 1994-1996.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert