Ætla yfir þrátt fyrir lokun

Vegurinn yfir Hellisheiði er lokaður.
Vegurinn yfir Hellisheiði er lokaður. mbl.is/Guðmundur Karl

Vegurinn um Hellisheiði og Þrengsli hefur verið lokaður vegna ófærðar síðan klukkan níu í morgun, og segir lögreglan á Selfossi að ekki geti talist miklar líkur á að leiðin verði opnuð í dag. Þrátt fyrir lokunina sé röð bíla veggja vegna heiðarinnar og ökumenn vilji ólmir leggja á hana.

Vegagerðin hefur gert tilraunir til að opna Þrengslaveg, en hann hefur orðið ófær jafnharðan. Lögreglan á Selfossi beinir þeim eindregnu tilmælum til ökumanna að þeir sýni biðlund og virði lokunina.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert