Eldsneytisleki á Reykjavíkurflugvelli

Upp kom eldsneytisleki á Reykjavíkurflugvelli í morgun.
Upp kom eldsneytisleki á Reykjavíkurflugvelli í morgun. Árvakur/Golli

Slökkviliðið á Reykjavíkurflugvelli sinnir nú útkalli vegna eldsneytisleka frá einkaþotu við flugskýli Flugþjónustunnar. Að sögn upplýsingafulltrúa Flugstoða fóru 10 lítrar niður við mistök við áfyllingu á einkaþotu.

Búið er að hreinsa upp eldsneytið eftir bestu getu en beðið er eftir a birti til að ganga úr skugga um að náðst hafi að hreinsa allt upp.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert