Samningur undirritaður

HB Grandi á Akranesi.
HB Grandi á Akranesi.

Klukkan 9 í morgun var undirritaður sérkjarasamningur á milli Verkalýðsfélags Akraness og Samtaka atvinnulífsins vegna starfa í fiskimjölsverksmiðju HB Granda á Akranesi. Þetta er væntanlega fyrsti samningurinn sem hefur verið undirritaður hjá ríkissáttasemjara í þessari samningslotu sem nú stendur yfir.

Á vef Verkalýðsfélags Akraness kemur fram að hækkanir á launaliðum samningsins eru með sama hætti og fyrirhugaður er á hinum almenna vinnumarkaði, þ.e.a.s. 18.000 kr. hækkun gildir frá 1. febrúar 2008, 13.500 kr. frá 1. mars 2009 og 6.500 kr. frá 1. mars 2010. Einnig var samið um ýmis önnur sérmál sem lúta að verksmiðjunni. Kosið verður um samninginn á morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert