10 ára drengur á fjórhjóli

Fjórhjól.
Fjórhjól.

Lögreglan á Selfossi fékk á föstudagskvökd tilkynningu um að á Stokkseyri væri á ferð um götur ungur drengur á fjórhjóli og hefði legið við slysi af akstri hans.  Við nánari athugun kom í ljós að þarna hafði verið á ferð 10 ára drengur. 

Lögreglan segir að foreldrum drengsins hafi verið gerð grein fyrir þeim reglum, sem gilda um réttindi og akstur fjórhjóla.  Drengurinn er ósakhæfur og fær því ekki refsingu fyrir brotið en mál hans verður sent barnaverndaryfirvöldum til meðhöndlunar. 


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert