Sparkaði í lögreglumann

mbl.is/Júlíus

Sparkað var í höfuð lögreglumanns þegar lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu voru að flytja mann sem hafði verið handtekinn í lögreglubifreið seint í gærkvöldi. 

Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu æstist maðurinn upp við handtöku og náði að sparka í höfuð lögreglumannsins sem vankaðist, og var fluttur á slysadeild til aðhlynningar, en hann var bólginn á höfði og með höfuðverk.

Maðurinn er nú vistaður í fangageymslu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert