„Sláandi fyndin pólitísk mynd"

stækka

mynd/Eggert Jóhannesson.

Blaðaljósmyndarafélag Íslands valdi mynd Eggerts Jóhannessonar, sem starfað hefur á Morgunblaðinu, mynd ársins en árleg sýning félagsins var opnuð í dag í Gerðarsafni. Myndin sýnir Gunnar I. Birgisson bæjarstjóra gleðjast á sextugsafmæli sínu í Glaðheimum, reiðhöll Gusts í Kópavogi. 

Í áliti dómnefndar segir að myndin skemmti ekki bara áhorfandanum heldur veki spurningar. „Fyndnar myndir eru ekki á hverju strái og sláandi pólitísk fyndin mynd er enn sjaldgæfari." Myndin var einnig valin skoplegasta mynd ársins.

Júlíus Sigurjónsson, ljósmyndari Morgunblaðsins, tók fréttamynd ársins af fólki að ganga yfir aurskriðu, sem féll á þjóðveginn í Kollafirði aðfaranótt 13. september. Dómnefndin segir að Júlíus sé með á nótunum og þarna hafi fagmaður verið á harðahlaupum til að mynda óvæntan fréttaviðburð.  Í dag sé sjaldgæft að ná að grípa slíkt augnablik og því eigi þessi mynd svo sannarlega skilið verðlaun í sínum flokki.Júlíus tók einnig myndina, sem valin var þjóðlegasta mynd ársins. Hún sýnir þá Stefán Eiríksson, lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins, og Sævar Ciesielski á bar í miðborg Reykjavíkur þegar Stefán fór á eftirlitsgöngu. Dómnefndin segir, að aðeins á Íslandi sjái maður lögreglustjóra brosmildan á bar á jólunum, heilsa vel þekktum afbrotamanni.

Eyþór Árnason tók landslagsmynd ársins. Dómnefnd segir að landslagsljósmyndun á Íslandi og almenningur þurfi svo sannarlega á nýrri og ferskri sýn að halda. Þessi mynd sé gott dæmi þess, snjöll og næm í senn. Kaldhæðnin sé sú, að svona sjáum við oft landslagið okkar í dag, þokukennt og óljóst út um glugga bíls á fleygiferð.

Hörður Sveinsson tók tímaritsmynd ársins af tónlistarmanninum Mugison. Dómnefnd segir, að mikið unnar myndir séu mjög áberandi í íslenskum tímaritum í dag. Þetta sé gott dæmi sem sameini viðfangsefnið og frumlega stafræna myndtækni og takist vel til. Vonandi verði skýrari línur dregnar á milli auglýsingaljósmyndunar og tímaritaljósmyndunar í framtíðinni.

Valgarður Gíslason tók portrettmynd ársins af Sigurði Árna Sigurðssyni, myndlistamanni. Dómnefnd segir, að um sé að ræða frumlegt og óvenjulegt portrett af listamanninum.

Íþróttamynd ársins tók Kristinn Magnússon af Orra Geirssyni, kraftlyftingamanni, gefa allt til að ná réttstöðulyftunni. Dómnefnd segir, að gífurleg áreynsla í heimi íþróttana leyni sér ekki og sé hér fönguð á kraftmikinn hátt. Það sem ekki sjáist á myndinni blasi í raun við manni og undirstriki á áhrifamikinn hátt hið mikla keppnisskap og viljastyrk.

Vilhelm Gunnarsson tók bestu myndina í flokknum daglegu lífi þegar tvö þúsund vatnsbyssueigendur felldu heimsmet í vatnsbyssuslag á landsmóti UMFÍ í Kópavogi í júlí. Dómnefnd segir að þetta sé frábær mynd sem sýni mikla gleði og fögnuð. Eftir að hafa skoðað yfir 1000 myndir þá sé ljóst, að íslensk fréttablöð virðist ekki hafa mikinn áhuga á að mynda daglegt líf. Mögulega sé ljósmyndararnir ófúsir að senda myndir í þennan flokk.

Loks átti Brynjar Gunnarsson myndröð ársins, sem nefnist  66°12´97”N og fjallar um daglegt líf Pólverja í fiskiþorpi úti á landi. Um myndröðina segir, að í mörgum íslenskum sjávarþorpum séu innflytjendur næstum helmingur íbúanna og oft meirihluti vinnufærs fólks. Flestir innflytjendanna séu Pólverjar sem setjast að í þorpunum vegna þess að húsnæði þar er ódýrt og vegna þess að þeir bera umtalsvert meira úr býtum en í heimalandinu.

Anna kom til Íslands 6. mars 1998 og Jarek í september sama ár. Í Póllandi lærði Anna viðskiptafræði en Jarek er úr sveit. Þau kynntust á Suðureyri. Anna er í fæðingarorlofi og hugsar um soninn Piotr. Þar sem Jarek vinnur við beitingar og hefur sveigjanlegan vinnutíma á hann auðvelt með að vera heima og gæta sonarins á meðan Anna sinnir erindum. Fyrir eiga þau soninn Pawel sem er í leikskóla. Annað foreldri að minnsta kosti helmings barnanna á leikskólanum er af erlendum uppruna.

Dómnefnd segir, að myndröðin sé verðug heimild í yfirstandandi skráningu lífs í íslenskum þorpum á 21. öld. Vonandi að fréttablöð og tímarit á Íslandi veiti sögum sem þessari stuðning.

Dómnefndina skipuðu þeir Pétur Thomsen, Ragnar Th. Sigurðsson, Brooks Walker, Eggert Skúlason og Per Folkver, myndritstjóri Politiken í Danmörku. Alls bárust um 1600 myndir í forvalið og valdi dómnefndin rúmlega 200 myndir sem prýða veggi Gerðarsafns. Veitt eru peningaverðlaun fyrir alla flokka en Glitnir hefur styrkt Blaðaljósmyndarafélagið.

Sýningin á myndunum stendur yfir í Gerðarsafni frá og með 23. febrúar til 16. mars og er aðgangur ókeypis. Á neðri hæð safnsins verður Páll Stefánsson, ljósmyndari, með einkasýningu

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »
Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara pening og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar Mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholti fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

„Svona sending er ný reynsla“

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ísland.
14:19 „Ég hef verið sakaður um margt á langri leið en aldrei fyrr um að gera lítið úr konum. Eftir að hafa í áratugi tekið virkan þátt í jafnréttisbaráttunni og átt þar fjölda áhrifaríkra kvenna að samherjum og samstarfsmönnum er svona sending vissulega ný reynsla!“ Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Volvo 940GL árg.91, nýskoðaður
Til sölu Volvo 940GL árg.91, 5 cylindra, 2.4, nýskoðaður, sjálfskiptur, leður sæ...
Til leigu
Til leigu í sumar 3 herbergja íbúð í Grafarvogi GSM 8940458...
Til sölu Skoda Octavia
Skoda Octavia 1600, bensín ,árg. 2000 beinskiptur, næsta skoðun 2013 (númer í g...
Kawasaki KX 85 árg. 2007 til sölu.
Nýr cylender, nýr stimpill, nýjar legur ì mòtor, ný dekk, ný plöst og ný lìmmið...
 
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Kynning skipulagsmála í rangárþingi eystra

Kynning skipulagstillöguí Rangárþin...