Fjöldi mistaka á sjúkrahúsum

Talið er að um 10 prósent sjúklinga verði fyrir mistökum starfsfólks eða óvæntum atvikum – minniháttar eða alvarlegum – á sjúkrahúsum og öðrum heilbrigðisstofnunum. Þetta sýna gögn frá heilbrigðisyfirvöldum á Vesturlöndum, en þau má heimfæra upp á Ísland að mati verkefnisstjóra hjá Landlæknisembættinu. Hún segir að mjög margt geti farið úrskeiðis í heilbrigðiskerfinu.

Landlæknisembættið hefur nú sent dreifibréf til allra heilbrigðisstofnana og fagfélaga heilbrigðisstétta þar sem hvatt er til að skráning verði aukin, svo unnt sé að bregðast við og læra af mistökum. Með óvæntu atviki er átt við óhappatilvik, mistök, vanrækslu eða önnur atvik sem valdið hafa sjúklingi tjóni eða hefðu getað valdið honum tjóni.

Aðrar fréttir í sjónvarpi mbl:

Hætta af umferðarmengun

Glundroði í rafmagnsleysi

Vetrarfærð á vegum

Ásakanir flugu á víxl

Vindlar sogaðir af áfergju

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert