Lengsta borhola landsins

Borinn Týr á Skarðsmýrarfjalli
Borinn Týr á Skarðsmýrarfjalli

Orkuveita Reykjavíkur hefur látið bora lengstu holu landsins. Hún er 3111 metrar að lengd og var stefnuboruð af norðurhluta Skarðsmýrarfjalls, undir útivistarsvæðið í Innstadal og er botn borholunnar undir suðurhlíðum Hengilsins. Holan var boruð til að afla gufu fyrir Hellisheiðarvirkjun og lofar góðu, að sögn OR. 

Orkuveitan segir, við upphaf framkvæmda á Hengilssvæðinu hafi verið  leitast við að draga sem mest úr raski en þarna eru vinsæl og fögur útivistarsvæði. Því var ákveðið að stefnubora langflestar holur og er botn sumra allt að 1,5 kílómetra út frá lóðlínu niður undan holutoppnum. Markmið þess að stefnubora ofan af Skarðsmýrarfjalli er að raska ekki göngusvæðum í Hengladölunum en ná engu að síður að nýta jarðhitann undir þeim.

Borhola af hólmi nokkurra áratuga gamla borholu sem lengsta borholan á Íslandi. Sú er á Laugarnessvæðinu í Reykjavík og var boruð á gamla Framvellinum, norðan og neðan við Stýrimannskólann, þar sem nú er risin íbúðabyggð. Hún var boruð árið 1979, lóðrétt niður á 3085 metra dýpi og því enn sú hola sem nær dýpst niður í jarðskorpuna hér á landi. Vegna sveigjunnar á holunni á Skarðsmýrarfjalli nær hún ekki niður á það dýpi þó hún sé lengri.

Holan við Skipholtið kann endanlega að missa titilinn síðar á árinu þegar lóðréttar holur verða boraðar á Hengilssvæðinu og víðar, enda hefur bortækninni fleygt fram, að sögn OR.

Jarðboranir eru borverktaki Orkuveitunnar á Hengilssvæðinu og var borinn Týr notaður til að bora holuna löngu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert