Rækjuveiðar heimilaðar í Arnarfirði

Rækjuvinnsla.
Rækjuvinnsla.

Sjávar- og landbúnaðarráðuneytið hefur heimilað veiðar á 150 lestum af rækju í Arnarfirði á vertíðinni.  Í ljós hefur komið að stofnvísitalan hefur hækkað frá því haustið 2007, auk þess er útbreiðsla rækjunnar mun meiri en undanfarna vetur.

Hafrannsóknastofnunin hefur nýlokið könnun á innfjarðarækjusvæðinu í Arnarfirði.  Rækjan reyndist mun stærri en oftast áður í vorkönnunum eða 188 stk. í kílói. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert