Tölvuþjófur komst undan

Tilraun til þjófnaðar mistókst.
Tilraun til þjófnaðar mistókst. mbl.is/Frikki

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn manns sem ruddist inn í tölvuverslun í Borgartúni og reyndi að hafa 2 tölvur á brott með sér. Starfsmaður sem reyndi að stöðva för þjófsins skrámaðist á andliti og var fluttur á slysadeild til athugunar.

Hann mun ekki vera alvarlega slasaður en hann kom í veg fyrir að þjófinum tækist ætlunarverk sitt.

Lögreglan sendi mikinn mannsafla á staðinn og leitaði í grennd við verslunina en samkvæmt varðstjóra er talið líklegt að hann hafi komist undan á bifreið, hugsanlega beið vitorðsmaður fyrir utan verslunina á bíl og auðveldaði  undankomu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert