Sofnaði og ók á sendlabíl

mbl.is/Júlíus

Umferðaróhapp varð á Reykjanesbrautinni á Strandarheiði rétt vestan við Kúagerði í morgun.  Þar mun ökumaður hafa sofnað undir stýri og lent utan í sendiferðabifreið sem hann ók á eftir.  

Þetta kemur fram á Lögregluvefnum.

Hinn syfjaði ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og var hann færður á lögreglustöð til skýrslutöku.  Hann reyndist einnig vera sviptur ökuréttindum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert