Hannes og Hao efstir

Hannes Hlífar Stefánsson er efstur ásamt kínverska stórmeistaranum Wang Hao á Alþjóðlega Reykjavíkurmótinu í skák. Hannes sigraði ísraelska stórmeistarann Victor Mikhalevski í gær og hefur því hlotið 6,5 vinninga ásamt Wang Hao. Björn Þorfinnsson sigraði lettneska stórmeistarann Normunds Miezis en með frammistöðu sinni hefur Björn náð sínum þriðja áfanga að alþjóðlegum meistaratitli og hefur þegar farið yfir 2.400 skákstig.

Skákmótinu lýkur í dag, 11. mars.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert