Sextán stútar um helgina

Sextán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um síðustu helgi. Á sama tímabili tók lögreglan fimm ökumenn sem voru undir áhrifum fíkniefna.

Áttatíu og tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina en fjögur þeirra má rekja til ölvunaraksturs.

Flest óhöppin voru minniháttar en í nokkrum tilvikum þurfti þó að flytja fólk á slysadeild.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert