Stal pels og spásséraði um miðborgina

Kona tilkynnti nýlega til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að mjög dýrmætum pelsi hennar hefði verið stolið úr fatahengi veislusalar í miðborginni þar sem konan var við erfidrykkju.

Nokkrum dögum síðar var athygli lögreglumanna á varðgöngu vakin á að pelsklæddur, en að öðru leyti illa tilhafður, karlmaður hefði sést á gangi um miðborgina. Lögreglumennirnir brugðust þegar við og gengu skipulega um miðborgarsvæðið, en voru við það að gefast upp þegar sá pelsklæddi birtist skyndilega fyrir framan þá.

Maðurinn var handtekinn við það sama og afklæddur pelsinum. Hann sagðist ekki muna eftir því hvort hann hefði verið í umræddri erfidrykkju og gripið pelsinn með sér á leiðinni út, en það hefði vel getað verið.

Konan bar strax kennsl á flíkina og fékk hana afhenta að nýju. Maðurinn verður væntanlega ákærður fyrir þjófnað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert