Annað rán í Breiðholti

mbl.is/Júlíus

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um annað rán í söluturni í Breiðholti rétt eftir hádegi í dag, í Leifasjoppu í Iðufelli.  Í gærkvöldi var einnig framið rán í söluturni í Eddufelli og ógnaði ræninginn starfsmanni með sprautunál.   Svipuð aðferð var notuð núna að sögn lögreglu, en ekki er vitað um hversu mikla fjármuni ræninginn hafði með sér, og verið er að rannsaka málið.   Ekki er vitað hvort sami maðurinn hafi verið að verki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert