Of snemmt að spá um útkomuna

mbl.is/Helga Mattína

„VIÐ hófum grásleppuveiðarnar 15. mars sl. og örugglega væri hægt að fiska ef veður gæfi,“ segir Svafar Gylfason, skipstjóri á Konráði EA 90 í Grímsey, um grásleppuveiðarnar að undanförnu. „Við höfum ekki komist nógu grunnt eins og tíðin er núna. Annars er of snemmt að spá um útkomuna, við fáum þetta 50 til 60 grásleppur, jafnvel 5-6 nátta,“ segir hann. Með Svafari um borð í Konráði EA á grásleppuvertíðinni eru þeir Sæmundur Ólason og Rúnar Helgi Kristinsson.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert