Orkupóstar settir upp á höfuðborgarsvæðinu

Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi, og Kjartan Magnússon, stjórnarformaður OR, stinga …
Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi, og Kjartan Magnússon, stjórnarformaður OR, stinga rafmagnsbílnum í samband. mbl.is/RAX

Orkuveita Reykjavíkur hefur í samstarfi við Reykjavíkurborg, Kringluna og Smáralind sett upp svonefnda orkupósta á bílastæðum þar sem rafbílaeigendum gefst kostur á að hlaða rafmagnsbíla endurgjaldslaust. Var orkupóstur tekinn formlega í notkun á bílastæði í Bankastræti í dag.

Markmið framtaksins er að hvetja íslenska bílaeigendur og íslensk bílaumboð til að kynna sér kosti rafmagnsbíla til notkunar í borgarumferðinni, að því er segir í tilkynningu.

Orkupóstar Orkuveitunnar eru fimm talsins og komast 10 bílar í hleðslu á þeim. Orkupóstarnir eru staðsettir á bílastæðum Smáralindar og Kringlunnar og í Bankastrætinu og þar þarf rafbílandinn ekki heldur að borga í stöðumæli.

Engir stöðumælar eru við verslunarmiðstöðvarnar og vistvænir bílar fá að leggja ókeypis í 90 mín. hverju sinni í miðbænum.

„Orkupósturinn er ósköp venjuleg rafmagnsinnstunga í kassa, þannig að orkupósta er að finna í hundruða þúsunda vís um alla borg og allt land. Rafbílaeigendur geta sótt lykla að orkúpóstunum í höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur,"  segir í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert