Mótmæltu vægum dómum

Hópur fólks sem berst fyrir umbótum á íslensku réttarkerfi hvað varðar kynbundið ofbeldi kom fyrir borða á vinnupöllum utan á Héraðsdómi Reykjavíkur seint í gærkvöldi til þess að leggja áherslu á baráttu sína. Á borðann er letrað: „Gerum við inni fyrst.“

Sóley Tómasdóttir, ein úr hópnum sem kom borðanum fyrir, sagði í samtali við Morgunblaðið að ytra byrði héraðsdóms væri ekki það sem femínistar teldu mikilvægast að gera við, heldur þyrfti að skoða réttarkerfið eins og það legði sig vegna þess að „dómar vegna kynbundinna ofbeldisbrota hafa ekki þyngst í samræmi við væntingar almennings að okkar mati og það er ekki tekið mið af alvarleika þeirra glæpa sem framdir eru af körlum gagnvart konum oft og tíðum“, sagði Sóley.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert