Skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefnasölu

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 19 ára gamlan karlmann í mánaðar fangelsi fyrir fíkniefnasölu en maðurinn var með 114 grömm af maríjúana í fórum sínum þegar hann var handtekinn í október á síðasta ári.

Einnig var fallist á kröfu lögreglunnar um að gera upptæk grammavog, skæri og 17 þúsund krónur í peningum, sem lagt var hald á hjá manninum.

Maðurinn játaði brotið. Hann hefur áður gerst sekur um smávægileg brot, þar á meðal fíkniefnabrot.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert