Eldur kviknaði á svölum húss við Mánagötu

Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst í kvöld tilkynning um að eldur hafi kviknað á svölum húss við Mánagötu.  Þar kviknaði í grilli á svölum annarrar hæðar og blés töluverðum eldi úr gaskút.  Að sögn slökkviliðs náðist að slökkva eldinn í tæka tíð. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert