Erlendir vogunarsjóðir hóta íslenskum fjölmiðlum

mbl.is

Dæmi eru um að nokkrir erlendir vogunarsjóðir hafi hótað íslenskum fjölmiðlum lögsóknum, fjalli þeir um ásakanir á hendur vogunarsjóða. Nokkrir vogunarsjóðir hafa verið sakaðir um að dreifa neikvæðum orðrómi um stöðu krónunnar og efnahagslífsins á Íslandi. 

Fréttastofa Sjónvarps greindi frá þessu í kvöld en þar kom fram að sjóðirnir hafi ýmist neitað ásökununum eða neitað að tjá sig um þær.  Þá kom fram að einn sjóðanna hafi hótað fréttastofu Ríkisútvarpsins og tímaritinu Iceland Review lögsókn, fjalli þeir um málið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert