Skoða aðkomu fjárfesta og halda áfram verkefnum REI

Hús Orkuveitu Reykjavíkur. stækka

Hús Orkuveitu Reykjavíkur.

Morgunblaðið Eftir Andra Karl andri@mbl.is

Aðkoma fjárfesta að Reykjavík Energy Invest (REI) er eitt af því sem skoðað verður í stefnumótun fyrirtækisins til framtíðar, að því er kom fram í máli Kjartans Magnússonar, stjórnarformanns Orkuveitu Reykjavíkur og REI, á borgarstjórnarfundi í gær.

Kjartan sagðist ekki sjá fyrir sér að REI fengi fjármagn frá Orkuveitunni í framtíðinni og fyrirtækið myndi lágmarka áhættu í þeim verkefnum sem þegar væru komin í gang. Á meðan vinna við stefnumótun væri í gangi þyrfti hins vegar að standa vel að rekstri REI og halda áfram með verkefnin. Borgarfulltrúi Framsóknarflokks sagði útrásarstefnu meirihlutans af sama meiði og mörkuð var af fyrsta meirihluta þessa kjörtímabils – sem sprakk eftirminnilega þegar REI-málið stóð hvað hæst.

Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokks, bar það undir Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, oddvita sjálfstæðismanna í borginni, hvort Kjartan hefði haft umboð borgarstjórnarflokksins þegar hann undirritaði samkomulag milli REI og ríkisstjórnar Afríkuríkisins Djíbútís og vilyrði fyrir frekari viðræðum við orkufyrirtæki jemenska ríkisins nú nýverið. Vilhjálmur játti því að Kjartan hefði haft umboð „til að vinna að framgangi þessara mála en með lágmarksáhættu að leiðarljósi“. Hann hrósaði jafnframt stjórnarformanninum fyrir vel unnin störf.

Þetta taldi Óskar staðfesta að stefnubreyting hefði orðið í flokki sjálfstæðismanna. Þeir færu nú fremstir í flokki í að fylgja eftir stefnu sem ekki samræmdist hugsjónum þeirra fyrir rúmum fimm mánuðum. Og rökin væru þau, að minna fé yrði varið í áhættufjárfestingar og aðrir samstarfsaðilar kallaðir til.

Í hnotskurn
» Reykjavík Energy Invest er dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur, stofnað í júní á sl. ári.
»S tefnt var að því að REI yrði leiðandi á heimsvísu í fjárfestingum í jarðvarmavirkjunum.
» Sameina átti fyrirtækið Geysir Green Energy, en upplýsingagjöf var fyrir borð borin og REI-málið svonefnda varð úr.
» Á eigendafundi OR í febrúar var samþykkt að REI yrði í 100% eigu Orkuveitunnar.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.

Ólafur mælist með mest fylgi

18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »

Kærði undirskriftafölsun

Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...
14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Átak gegn ölvunarakstri

Úr safni.
15:29 130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Meira »

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

Flugvél Iceland Express í höfn
14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »

Meta lögmæti samningsins

Sveitarfélagið Garður.
14:33 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Garðs ætlar að láta meta lögmæti samnings sem fyrri meirihluti gerði við Ásmund Friðriksson bæjarstjóra. Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra í fjölmiðlum á morgun. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
IPAD1 64G, 3G og Wifi
Til sölu IPAD1 64G 3G og Wifi, 1,5 árs en lítið notaður, keyptur hjá Iphone.is. ...
Hellur, garðhellur til sölu MEÐ 50% AFSLÆTTI
Hellurnar eru frá mest steypustöð og eru með granítyfirborði sem gerir þær mun s...
Til sölu Benzhou vespa
Ég er 50 cc vespa silvurgrá og svört árg. 2010 ekinn 1.300 km eins og ný, alltaf...
Fleetwood Cheyenne árg. 2007, 10 fet.
Markísa, fortjald, grjótvörn, upph., álfelgur, heitt og kalt vatn, íssk., hljómt...
 
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...
Borgarbókavörður
Sérfræðistörf
Laus er til umsóknar staða borgarbókava...
Samkoma sunnudagur
Félagsstarf
Sunnudagur Kl. 11.00 Samkoma o...
Forval fit

Mynd af auglýsingu ...