Álverið í Straumsvík starfar undir merkjum Rio Tinto Alcan

Alcan á Íslandi hf., sem rekur álverið í Straumsvík, mun framvegis starfa undir merkjum Rio Tinto Alcan. Íslenska fyrirtækið heitir enn Alcan á Íslandi hf. og verksmiðjuheitið innan Rio Tinto Alcan samsteypunnar er áfram ISAL.

Rio Tinto er alþjóðlegt leiðandi námafélag sem keypti Alcan Inc., móðurfélag Alcan á Íslandi, seint á síðasta ári og er álframleiðsla fyrirtækisins rekin undir sameinuðum nöfnum félaganna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka