Krotað á strætó í skjóli nætur

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Krotað var á 13 strætisvagna við Hestháls í Reykjavík í nótt, samkvæmt upplýsingum lögreglu. Ekki er vitað hverjir voru þar að verki og ekki liggur fyrir að svo stöddu hvort tjónið er mikið.

Næturvaktarmenn sem vinna við þrif vagna í aðstöðu Strætó við Hestháls tilkynntu um krotið um þrjúleytið í nótt, en talið er að styggð hafi komist að kroturunum er þeir urðu vaktmannanna varir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert