Atvinnubílstjórar á leið í Ártúnsbrekku

Bílstjórar stöðvuðu umferð í stuttan tíma á Kringlumýrarbraut fyrir nokkru.
Bílstjórar stöðvuðu umferð í stuttan tíma á Kringlumýrarbraut fyrir nokkru. mbl.is/Júlíus

Hópur atvinnubílstjóra er nú að búa sig í mótmælaaðgerðir í morgunsárið.  Sturla Jónsson,  talsmaður atvinnubílstjóra, sagði í samtali við blaðamann mbl.is fyrir stundu að hópurinn væri á leið í Ártúnsbrekku til að kanna þar aðstæður.

Sturla sagði  óljóst hversu margir bílstjórar ætluðu að taka þátt í aðgerðum í dag það væri að „safnast í hópinn". Þá sagði hann atvinnubílstjóra ætla að hvetja aðra til að koma út úr bílum sínum og taka þannig þátt í mótmælunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert