Íslendingar komi sér upp þjóðarsjóði

Björgólfur Guðmundsson á aðalfundi Landsbankans í dag.
Björgólfur Guðmundsson á aðalfundi Landsbankans í dag. mbl.is/Golli

Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbankans, sagði á aðalfundi bankans í dag að Íslendingar ættu að koma sér upp öflugum varasjóði, einskonar þjóðarsjóði, til að verja efnahagslífið og hagstjórnina fyrir svipuðum áföllum og þeim, sem dunið hafa yfir síðustu mánuði.

Björgólfur sagðist vera þeirrar skoðunar að ef  Íslendingar vilji halda áfram á þeirri braut að taka fullan þátt í viðskiptum á alþjóðamarkaði, halda  fram að auka tekjur sínar í viðskiptum við útlönd, halda sjálfstæðri efnahagsstjórn og eiga kost á eigin gjaldmiðli, þá sé nauðsynlegt að koma okkur upp mjög öflugum varasjóði.

„Við ættum að koma okkur upp þjóðarsjóði sem hefði tekjur af auðlindum lands og hugviti þjóðarinnar. Þjóðarsjóði sem mundi verja efnahagslífið og hagstjórnina fyrir svipuðum áföllum þeim sem dunið hafa á okkur síðustu mánuði. Að mínum dómi ættu stjórnvöld að huga að stofnun slíks sjóðs jafnhliða því sem þau kanna með hvaða hætti öðrum má stuðla að stöðugleika í íslensku efnahags- og atvinnulífi," sagði Björgólfur.

Hann sagði að öllum væri það orðið ljóst, að ekki yrði unað við óbreytt ástand. Engin vinnufyrirtæki geti borið til lengdar yfir 15% stýrivexti og engin fyrirtæki geta vaxið þegar verðlag og gengi sveiflast upp og niður og lítið ræðst við verðbólgudrauginn.

„Og jafnvel þó við yrðum hluti af stærra peningakerfi og tækjum upp stöðugri mynt þá er ég ekki frá því að bjartsýni, ákafi og áhættusækni okkar Íslendinga muni eftir sem áður skapa þrýsting á efnahagskerfi okkar. Þá yrði ekki síður mikilvægt að eiga varasjóð til að vinna gegn skaðlegum sveiflum í búskap okkar.

Að sjálfsögðu geri ég mér grein fyrir því að öflugur þjóðarsjóður verður ekki til á einni nóttu og ljóst er að sjóður sem þessi býr ekki til nýja peninga. En hann mun stuðla að stöðugleika og ég vil trúa því að ein auðugasta þjóð veraldar muni á áratug eða svo safna fjármunum sem munu skipta sköpum og skjóta alveg nýjum og sterkum stoðum undir efnahagslegt og stjórnarfarslegt sjálfstæði Íslendinga. Lífeyrissjóðirnir sem fyrir um fjörtíu árum byrjuðu á einni lítilli innborgun eru nú orðnir miklu stærri en ríkissjóður. Sama mun verða um okkar varasjóð. Hálfnað er verk þá hafið er," sagði Björgólfur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert