Aðild að ESB ekki fýsilegur kostur segir forseti Alþingis

Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis og Guðjón Friðriksson sagnfræðingur
Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis og Guðjón Friðriksson sagnfræðingur

„Aðild að Evrópusambandinu myndi kalla á breytingar á auðlindanýtingu okkar. Það hlýtur því að verða að skýra það vel út fyrir kjósendum í sjávarbyggðum á Íslandi hvers vegna við eigum að fela yfirráð og skipulag nýtingar sjávarauðlindarinnar stjórnmálamönnum og embættismönnum Evrópusambandsins. Í mínum huga er slík valda tilfærsla ekki fýsilegur kostur." Þetta kom fram í máli Sturlu Böðvarssonar, forseta Alþingis við afhendingu verðlauna Jóns Sigurðssonar forseta.

Guðjón Friðriksson verðlaunahafinn

Verðlaunin, sem voru afhent í fyrsta skipti í dag féllu Guðjóni  Friðrikssyni sagnfræðingi í skaut. Guðjón Friðriksson hefur skrifað  ævisögur nokkurra þjóðkunnra Íslendinga, m.a. Einars Benediktssonar, Hannesar Hafsteins og Jónasar Jónssonar frá Hriflu.  En það er verk hans í tveimur bindum um ævi Jóns Sigurðssonar, sem kom út árin 2002 og 2003, sem er ástæða þess að Guðjón hlýtur verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta að þessu sinni, samkvæmt tilkynningu. 

Sturla gerði stöðu Íslands gagnvart Evrópu að umtalsefni í hátíðarráðu sinni í Jónshúsi í Kaupmannahöfn í dag.

Sagði hann stöðu Íslands á margan hátt einstaka. „Íslendingar lifa á mörkum tveggja álfa í samfélagi sem sækir hið besta bæði úr gömlu Evrópu og Nýja heiminum. Búseta á Íslandi mótast auðvitað af legu landsins og verður alltaf ósambærileg við það að búa í hinni þéttbýlu og frjósömu Mið-Evrópu og Skandinavíu. Afstaða okkar og kjör hljóta að mótast af hinum sérstöku aðstæðum sem eru á Íslandi. Það er því er ekki óeðlilegt að við teljum okkur ekki geta innleitt allar reglur viðskipta sem geta gilt í Evrópu svo sem reglur um auðlindanýtingu og hlutverk landbúnaðar í því að byggja upp fæðuöryggi þjóðarinnar.

Íslenskir stjórnmálamenn hljóta að horfa til arfleifðar þjóðfrelsishetjunnar Jóns Sigurðssonar frá Rafnseyri þegar við metum hagsmuni lands og lýðs í samskiptum þjóðanna. Það er hlutverk okkar alþingismanna að setja lög og móta stefnu til hagsbóta fyrir land og þjóð, í þágu framtíðar og á grunni reynslunnar. Við berum bæði ábyrgð gagnvart þeim sem skópu sögu okkar og ekki síður gagnvart komandi kynslóðum. Gera verður kröfu til þess að stjórnmálamenn þekki og virði þá framvindu sem tryggði sjálfstæði okkar og stofnun íslenska lýðveldisins. Með fullveldi Íslands voru skapaðar þær kringumstæður sem hafa lagt grundvöllinn að auðlindanýtingu og hagsæld þjóðarinnar.

Það er vissulega hollt að minnast kenninga Jóns og krafna um sjálfstæði þegar hugleidd er sú sérstaka staða sem við Íslendingar erum í við byrjun 21. aldar.

Það eru á lofti kraftmiklar kenningar um vaxandi velsæld til sjós og lands í skjóli Evrópusambandsins. Þær kenningar eru settar fram af fólki sem við hlustum á og metum. Við nánari skoðun virðist þeim sjónarmiðum þó jafnvel teflt fram út frá mjög þröngu sjónarhorni eða jafnvel draumsýnar stjórnmálamanna, sem láta óskhyggjuna um of ráða för. En hvernig sem allt veltist þurfum við að tryggja hagsmuni fjöldans um leið og við sköpum útrásarvíkingum okkar svigrúm."

Kosið um aðild að ESB 2011

Að sögn Sturlu eru kröfur og kenningar um inngöngu í Evrópusambandið reistar þegar við Íslendingar erum efnaðri og betur settir en við höfum nokkru sinni verið í sögu þjóðarinnar. Þökk sé framsýnum stjórnmálamönnum, sókndjörfum athafnamönnum og þrautseigri þjóð. Ýmsir virðast vilja leita eftir skjóli innan Evrópusambandsins þegar við höfum hreppt mótvind um stund, sagði Sturla í dag.

„Eðlilegt er að varpa fram þeirri spurningu hvort það sé í anda hugsjóna Jóns Sigurðssonar að afsala hluta fullveldis okkar og flytja valdið yfir auðlindum sjávar til sameiginlegs og yfirþjóðlegs valds Evrópusambandsins? Hefur Evrópusambandið forsendur til þess að meta aðstæður okkar Íslendinga sem búum við ysta haf og nýtum auðlindir eldvirkninnar og framrás jökulfljótanna, róum til fiskjar og viljum halda til haga sagnaritum okkar og sögulegri arfleifð. Mun hið háa Alþingi, sem var stofnað á Þingvöllum árið 930 og hefur verið stolt okkar Íslendinga, njóta sæmdar og hafa þau áhrif sem því ber innan Evrópusambandsins?  Þetta eru spurningar sem erfitt er að svara, en vert að velta fyrir sér.

Síðasta vor var gengið til alþingiskosninga. Að loknu þessu kjörtímabili, árið 2011, verða bæði 200 ár liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar og 160 ár frá þjóðfundinum 1851, þar sem Jón steig fram fyrir skjöldu og mótmælti því ofbeldi sem hið erlenda vald beitti fulltrúa Alþingis.

Því hefur verið varpað fram að í næstu kosningum, sem verða ekki seinna en árið 2011, verði í raun og veru kosið um aðild okkar Íslendinga að Evrópusambandinu. Í þeim alþingiskosningum verði lagt fyrir þjóðina að velja þingmenn með hliðsjón af afstöðu þeirra til umsóknar um aðild að Evrópusambandinu. Þetta eru vissulega mikil tíðindi ef af verður og undarleg gráglettni örlaganna ef sú verður raunin á 200 ára afmælishátíðarári sjálfstæðishetjunnar. Það má velta fyrir sér hvert ræðuefnið verður á Austurvelli við hlið styttu Jóns Sigurðssonar 17. júní það herrans ár 2011 að loknum kosningum.

Það er eflaust mikilvægt að skipuleggja umræðu í íslensku samfélagi og láta meta kosti þess og galla að Ísland afsali sér hluta fullveldis með aðild að Evrópusambandinu. Ákvarðanir um grundvallarbreytingar á stöðu okkar sem sjálfstæðrar þjóðar kalla á breytingar á stjórnarskránni . En við verðum að skoða fleira en efnahagsleg rök sem mæld eru í krónum eða evrum. Íhuga þarf mikilvægi þjóðarvitundar og sjálfstæðis okkar mitt á milli Ameríku og Evrópu þar sem við bæði njótum og gjöldum einangrunar landsins fjarri stærstu mörkuðum.

Aðild að Evrópusambandinu myndi kalla á breytingar á auðlindanýtingu okkar. Það hlýtur því að verða að skýra það vel út fyrir kjósendum í sjávarbyggðum á Íslandi hvers vegna við eigum að fela yfirráð og skipulag nýtingar sjávarauðlindarinnar stjórnmálamönnum og embættismönnum Evrópusambandsins. Í mínum huga er slík valda tilfærsla ekki fýsilegur kostur. Margir telja að við eigum að leita áfram samstarfs á grundvelli EES-samningsins, sem hefur reynst okkur vel. Ég tel að það hljóti til dæmis að vera í þágu matvælaöryggis Evrópu að við nýtum auðlindir sjávar með sjálfbærum og hagkvæmum hætti eins og við höfum gert og byggjum áfram upp íslenska landbúnaðinn á forsendum þess ósýkta umhverfis sem við búum við en aukum jafnframt samkeppni í þágu neytenda.

Það ber umfram allt að varast að byggja upp óraunhæfar væntingar um stöðu okkar innan Evrópusambandsins. Sem smáþjóð eigum við að nýta styrk okkar þar sem við getum og við höfum margt fram að færa og getum haft áhrif, þótt við stöndum utan Evrópusambandsins.

Flestir sem aðhyllast inngöngu ganga út frá því sem vísu að við getum nánast gengið þangað inn þegar okkur hentar. Víst kann það að vera möguleiki, en eingöngu ef við erum tilbúin sem þjóð að ganga að öllum þeim kostum sem okkur eru settir. En myndi slíkt þjóna hagsmunum okkar sem þjóðar? Myndi slíkur framgangur vera í anda Jóns Sigurðssonar?

Það virðist vera þannig að áköfustu áhugamenn um inngöngu í Evrópusambandið láta lönd og leið forsendur fyrir fullveldi og sögulega stöðu okkar sem sjálfstæð þjóð með elsta þjóðþing veraldar. Þeir varpa öllum gildum fyrir róða nema stundarhagsmunum okkar og mæla öll gæði í krónum eða evrum. Ef við viljum ná árangri fyrir þjóðina verðum við hins vega að gefa okkur tíma og byrja á réttum enda þessa máls.

Við þurfum að leggja alla áherslu á að ná vopnum okkar innanlands og tryggja aftur stöðugleikann í efnahagsmálum áður en við hugum að aðild. Við getum ekki og eigum ekki að koma á hnjánum og óska inngöngu vegna efnahagslegra vandræða. Þeir sem halda að upptaka evru sé lausn alls vanda verða að huga að því að Evrópusambandsaðild fylgir ekki sjálfkrafa upptaka hins sameiginlega gjaldmiðils. Til að ganga í Myntbandalagið og geta tekið upp evru verður fyrst að uppfylla þau ströngu skilyrði sem kennd eru við Maastricht. Staðan í ríkisfjármálum á Íslandi er sterk, ríkissjóður hefur verið rekinn hallalaust og erlendar skuldir ríkisins eru í lágmarki. Ísland uppfyllir þannig Maastricht skilyrðin hvað varðar ríkisfjármál. Það gerum við aftur á móti ekki þegar horft er til viðmiða um lága verðbólgu og stöðugt gengi. Því verðum við að ná tökum á efnahagsmálum og tryggja stöðuleika af eigin rammleik, áður en upptaka evru kemur til greina.  Lausn vandans okkar í efnahagsmálum er því áfram í okkar höndum um sinn.

Ég hef hér gert grein fyrir mínum sjónarmiðum um Ísland og Evrópusambandið, en það er ekki víst að mín skoðun verði ofan á. Auk þess geta aðstæður breyst vegna hluta sem við sjáum ekki fyrir. En ef þjóð og þing metur það svo, að lokinni vandlegri ígrundun, að aðild kunni að vera vænlegur kostur, eigum við að mæta til samninga á eigin forsendum með reynslu okkar og viljann að vopni. Við þær aðstæður getum við samið af styrk um sérstöðu okkar m.a. í sjávarútvegsmálum, og án þess að fórna öðrum þáttum í okkar samfélagi eins og gæti orðið með íslenskan landbúnað," að því er fram kom í hátíðarræðu Sturlu í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert