Beitti stúlku kynferðislegu ofbeldi

Málið er að sögn í rannsókn.
Málið er að sögn í rannsókn. mbl.is/Júlíus

Sjötíu og fimm ára karlmaður úr Kópavogi hefur verið kærður fyrir að beita stúlku kynferðislegu ofbeldi á átta ára tímabili, frá því að hún var tólf ára til tvítugs. Konan sem nú er tuttugu og eins árs lagði fram kæru í síðasta mánuði.

 Yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar staðfestir samkvæmt kvöldfréttum Sjónvarpsins að málið sé í rannsókn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert