Vilja ræða málefni mannréttindaskrifstofu
Fulltrúar Samfylkingar, Vinstri grænna og Framsóknarflokks óskuðu í dag eftir því að málefni mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar og framtíðarsýn og stefna meirihlutans í mannréttindamálum yrði sett á dagskrá á næsta fundi borgarráðs. Var jafnframt óskað skriflegra svara borgarstjóra í því efni.
Samkvæmt upplýsingum frá oddvita Samfylkingarinnar í borgarstjórn, Degi B. Eggertssyni, verður mannréttindaskrifstofa borgarinnar óstarfhæf frá og með 1.maí næstkomandi en þá lætur Mannréttindastjóri borgarinnar og eini starfsmaður skrifstofunnar af störfum. Borgarstjóri virðist hafa sett á ráðningabann í mannréttindamálum þar sem ekki hefur verið ráðið í þrjár nýjar stöður á mannréttindaskrifstofuna sem fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir.
„Metnaðaleysi meirihluta Sjálfstæðisflokks og Ólafs F. Magnússonar í að tryggja framgang mannréttindamála hefur verið slíkur, að störfin hafa ekki verið auglýst hvað þá ráðið í þau. Uppsögn Mannréttindastjóra var ekki tilkynnt minnihlutanum fyrr en á fundi mannréttindaráðs í fyrradag þrátt fyrir að Mannréttindastjóri hafi fyrir einhverjum vikum sagt upp. Borgarráðsfulltrúar meirihlutans lásu um hana í blöðunum.
Nú er svo komið að Mannréttindaskrifstofa borgarinnar sem vinnur að málefnum kynjanna, innflytjenda, fatlaðra, aldraða, samkynhneigðra og barna er algjörlega óstarfhæf vegna vanrækslu meirihlutans. Sú óstjórn sem nú ríkir hjá meirihlutanum í borgarstjórn er komin á það stig að ekki tekst að halda grunn starfsemi borgarinnar gangandi, ekki einu sinni þeirri starfsemi sem á að tryggja framgang mannréttinda," samkvæmt upplýsingum frá Degi.
Bloggað um fréttina
-
Guðmundur Óli Scheving Engin mannréttindi fyrir Innflytjendur,Fatlaða eða Samkynhneigða !! -
Guðmundur Jónas Kristjánsson Gott framtak borgarstjóra
Innlent »
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 28. apríl 2008, Innlent Borgarstjóri segir yfirlýsingar Sóleyjar ekki réttar
- Fimmtudagur, 11. október 2007, Innlent Sviptingar í borgarstjórn
- Þriðjudagur, 6. maí 2008, Innlent Staða mannréttindastjóra auglýst
- Fimmtudagur, 11. október 2007, Innlent Flokkarnir skipta með sér verkum í grófum dráttum
- Fimmtudagur, 11. október 2007, Innlent Dagur boðar til blaðamannafundar við Ráðhúsið
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































