Stjórn SA hvetur aðildarfyrirtæki til hófs við verðlagningu

Stjórn Samtaka atvinnulífsins hvetur aðildarfyrirtæki samtakanna til þess að gæta hófs og aðhalds við verðlagningu í því umróti sem ríkir um þessar mundir. Samdráttur eftirspurnar er fyrirsjáanlegur og af því leiðir að ekki verður unnt að velta öllum kostnaðarhækkunum áfram út í verðlag.

Á fyrsta fundi nýkjörinnar stjórnar Samtaka atvinnulífsins komu fram þungar áhyggjur af stöðu efnahagsmála. „Vandi á fjármálamörkuðum, hátt vaxtastig, fyrirsjáanlegur samdráttur í umsvifum og atvinnu, vaxandi verðbólga erlendis, veik staða krónunnar og mikil verðbólga innanlands um þessar mundir vegna gengislækkunar eru þættir sem hafa gríðarleg áhrif á afkomu fyrirtækja og kjör launafólks. Fyrirsjáanlegt er að aðlögun að breyttum aðstæðum verði erfið og taki tíma. Stjórnin telur afar brýnt að allir aðilar sem áhrif hafa á framvinduna á næstu mánuðum og misserum, þ.e. ríkisstjórn, stjórnarandstaða, sveitarfélög og aðilar á almennum og opinberum vinnumarkaði stilli saman strengi sína með það að markmiði að draga úr verðbólgu og koma í veg fyrir að háar verðbólguvæntingar festist í sessi," að því er segir á vef SA. 

Þar kemur fram að hækkun heimsmarkaðsverðs á olíu og matvælum hefur rýrt kjör þjóðarinnar og á sama tíma þarf þjóðin að horfast í augu við að hátt gengi krónunnar undanfarin ár hélt uppi hærri kaupmætti en fékk staðist til langframa. „Við núverandi aðstæður er yfirvofandi  hætta á víxlverkandi hækkunum launa og verðlags og áframhaldandi veikingar gengis krónunnar sem allir tapa á. Þá atburðarás er hægt að koma í veg fyrir," samkvæmt frétt á vef SA.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert