Fyrsti forsetabíllinn

mbl.is/Frikki

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands tók í dag á móti forsetabíl Sveins Björnssonar, sem var fyrsti forseti lýðveldisins, en bíllinn hefur nýlega verið endurgerður.

Bifreiðin er af Packard-gerð, frá árinu 1942, og var fyrsta forsetabifreiðin, notuð á upphafsárum Sveins  í embætti forseta Íslands.

 Hún var keypt notuð frá Bandaríkjunum en bifreið sömu gerðar hafði verið gjöf Roosevelts forseta til Sveins Björnssonar en hún var um borð í Goðafossi þegar skipið var skotið í kaf í nóvember 1944.

Bifreiðin er eign Þjóðminjasafns Íslands en verður geymd á Bessastöðum og notuð og sýnd við sérstök tækifæri.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert