Konungssteinar fá nýja ásýnd

Steinninn með fangamarki Frðriks konungs VIII stendur eins og hinir …
Steinninn með fangamarki Frðriks konungs VIII stendur eins og hinir á heldur ömurlegum stað. Tveir kraftamenn, Björn bóndi Sigurðsson í Úthlíð og Bjarni Már Gíslason bifreiðastjóri hjá Kynnisferðum, reyna sig á steininum. mbl.is

Konungssteinarnir í hlíðinni fyrir ofan Geysi í Haukadal hafa fengið nýja og skarpari ásýnd. Ástæðan er heimsókn Friðriks Danaprins og Mary Elisabeth, konu hans, til Íslands eftir helgi.

Steinarnir bera ártöl þriggja konungsheimsókna, 1874, 1907 og 1921 og fangamark þriggja konunga, Kristjáns IX., Friðriks VIII. og Kristjáns X. Áletranirnar voru orðnar nokkuð máðar. Fyrirtæki sem tengjast viðskiptum Danmerkur og Íslands styrktu viðgerðina.

Nánar í sunnudagsútgáfu Morgunblaðsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert