Farþegum FÍ til og frá Eyjum fjölgar

Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjar. mbl.is/GSH

Fjöldi farþega í flugi Flugfélags Íslands til og frá Vestmannaeyjum jókst um 27% fyrstu fjóra mánuði ársins  2008 miðað við sama tímabil á fyrra ári.

Félagið segir, að um sé að ræða marktæka breytingu  á fjölda erlendra ferðamanna og séu bókanir fyrir sumarið mjög góðar.

Frá og með 1. maí hafa verið flognar 3 ferðir á dag alla daga vikunnar nema miðvikudaga og laugardaga og verða því 19 ferðir á viku í boði í allt sumar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert