Olíuleki á gatnamótum Borgartúns og Höfðatúns

mbl.is

Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um olíuleka nærri gatnamótum Borgartúns og Höfðatúns um eitt leytið í dag.  Að sögn slökkviliðs fór lyftari sem var að flytja tank á hliðina og láku 200 lítrar af díselolíu á götuna.  Hreinsibíll var sendur á vettvang og hefur slökkvilið lokið störfum þar. 

Þá lak töluvert af olíu úr bíl við Bílabúð Benna á Vagnhöfða fyrir skömmu og er slökkviliðið nú að störfum þar við að hreinsa upp olíuna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert