Bullukollur braut rúðu

Maður gistir nú fangageymslur eftir tilraun til innbrots.
Maður gistir nú fangageymslur eftir tilraun til innbrots. mbl.is/Július

Karlmaður á fertugsaldri gistir nú fangageymslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir að hafa gert tilraun til innbrots á bensínafgreiðslustöð við Háaleitisbraut í Reykjavík í nótt.

„Nei, þetta er bara einhver bullukollur," sagði varðstjóri er hann var inntur eftir því hvort maðurinn væri í annarlegu ástandi og eða góðkunningi lögreglunnar. 

Maðurinn náðist skammt frá bensínstöðinni en hann mun einungis hafa brotið rúðu og ekki farið inn. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert