Bankaræningi handtekinn

Frá bankaráninu í Hafnarfirði.
Frá bankaráninu í Hafnarfirði. mbl.is/Július

Karlmaður á þrítugsaldri hefur játað að hafa framið rán í útibúi Landsbankans á Bæjarhrauni í Hafnarfirði síðastliðinn miðvikudag en maðurinn var handtekinn í gærkvöld. Hann var einn að verki samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Strax eftir ránið var lýst eftir ræningjanum og síðar sama dag birtu fjölmiðlar myndir sem náðust af honum í bankanum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þakkar þeirra þátt í að upplýsa málið en í tilkynningu frá lögreglu segir að myndbirting og umfjöllun fjölmiðla hafi aðstoðað við að hafa hendur í hári ræningjans,

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert