Þrítugasta og fjórða starfsári Myndlistaskólans á Akureyri lýkur með veglegri sýningu sem hefst í dag. Sýnd verða verk nemenda fornámsdeildar, listhönnunar- og fagurlistadeildar og þar gefur að líta sýnishorn af því helsta sem þeir hafa verið að fást við í myndlist og hönnun á þessu skólaári.
Einnig verða sýnd verk eftir nemendur sem voru á barna- og unglinganámskeiðum á vorönn. Sýningin verður opin kl. 14 til 18 í dag, á morgun og á mánudag. Fjörutíu og fjórir nemendur stunduðu nám í dagdeildum og af þeim munu sautján brautskrást að þessu sinni.