Nýr hjólastígur um Ægisíðu

Göngustígur við Ægisíðu stækka

Göngustígur við Ægisíðu mbl.is/Golli

Sérstakur átta kílómetra langur hjólastígur frá Faxaskjóli að Reykjanesbraut var kynntur í umhverfis- og samgönguráði Reykjavíkur í gær. Í fyrsta áfanga verður sérstakur hjólastígur lagður meðfram Ægisíðu frá Faxaskjóli að Suðurgötu. Áætlaður kostnaður við þá framkvæmd er 36 milljónir króna.

„Hjólandi umferð fær sérakrein sem bætir öruggi þeirra og gangandi vegfarenda, og þjónusta við stíginn verður jafnframt aukin,“ segir Gísli Marteinn Baldursson formaður ráðsins, í fréttatilkynningu.

Markmiðið er að bæta aðstæður fyrir gangandi og hjólandi með breiðari stíg, aðskilnaði og breyttri legu. Lagt er til að göngu- og hjólastígurinn verði með lýsingu sem hvorki spillir útsýni né veldur nágrönnum stígsins ónæði.

„Nú hefst kynningar- og samráðsferli þar sem íbúum borgarinnar gefst tækifæri til að koma með tillögur og ábendingar um þennan stíg. Ég kalla sérstaklega eftir athugasemdum frá þeim sem búa næst stígnum,“ segir Gísli Marteinn.

Ellý Katrín Guðmundsdóttir sviðsstýra Umhverfis- og samgöngusviðs segir í fréttatilkynningu, tvöföldun stígsins vera byltingu í umhverfi hjólreiðamanna. „Stígurinn styrkir bæði hjólreiðar og göngur sem samgöngumáta og gerir báðum hópum mögulegt að njóta sín betur,“ segir Ellý Katrín og er ánægð að geta kynnt stíginn á sama tíma og átakið Hjólað í vinnuna stendur yfir. „Reykjavík sýnir hér samgöngustefnu sína hér í verki: að virða ólíkar ferðavenjur borgarbúa. “

„Stór þáttur Grænu skrefanna í Reykjavík er að bjóða fólki upp á betri aðstöðu til að ganga eða hjóla leiðar sinnar í borginni,“ segir Gísli Marteinn Baldursson. „Það er ekki nóg að malbika renning á milli staða heldur verður að gera umhverfið aðlagandi, öruggt og þægilegt í notkun. Í þessum fyrsta áfanga skilgreinum við stíginn frá Faxaskjóli í vestri upp í Elliðaárdal og reynum að hefja þessa fallegu leið upp á nýtt plan,“ segir hann.

„Mér finnst þetta vera mikið framfaraskref, “ segir Gísli Marteinn. „Til þess að fjölga þeim sem velja að hjóla leiðar sinnar verðum við að taka þennan samgöngumáta alvarlega. Inn á þennan stíg munum við svo tengja norður suður brautir, Suðurgötu og Hofsvallagötu, þannig að þeir sem vilja hjóla til dæmis úr Breiðholti niður í bæ geti gert það hratt og örugglega.“

Lagt er til að stígurinn sem í dag er þrír metrar verði breikkaður um tvo og hálfan metra. Þar sem því er viðkomið verður rúmlega eins metra eyja á milli með gróðri. Annarstaðar verður skilið á milli gangandi og hjólandi með málaðri línu.

„Þetta er tvímælalaust stærsta átak síðari ára í uppbyggingu göngu og hjólreiðastíga í borginni. Lífsgæði þeirra sem vilja njóta strandlengjunnar á rólegri göngu er aukin samhliða því að hjólreiðar fá sess sem fullgildur samgöngumáti í borginni. Ég er ákaflega stoltur af þessu framtaki,“ segir Gísli Marteinn Baldursson ennfremur í fréttatilkynningu.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.

Meintar falsanir til lögreglunnar

19:39 Tekin var ákvörðun um það í dag af yfirkjörstjórnum í Reykjavík að vísa meintum fölsunum á undirskriftum á meðmælendalistum Ástþórs Magnússonar, forsetaframbjóðanda, til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

Tryggja að allir komist heilir heim

18:59 Haldið verður úti auknu umferðareftirliti í sumar á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut af hálfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra. Meira »

Gæsluvarðhaldið staðfest

18:29 Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur karlmönnum sem grunaðir eru um að hafa valdið dauða samfanga síns í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir rúmri viku. Héraðsdómur hafði áður úrskurðað mennina í gæsluvarðhald til 13. júní. Meira »

Húsbíll fauk af vegi

18:09 Húsbíll fauk í Fljótum, skammt frá Ketilási um hádegisbilið í dag. Tvennt var í bílnum og voru þau flutt á heilsugæsluna á Siglufirði til aðhlynningar. Meira »

Yfirheyrslur héldu áfram í dag

Fangelsið á Litla-Hrauni.
18:00 Yfirheyrslur vegna láts fanga á Litla-Hrauni, sem talið er hafa borið að með sviplegum hætti, héldu áfram í dag og var nokkur fjöldi vitna yfirheyrður, þar á meðal fólk sem tengist fangelsinu. Meira »

Fundur Háskólalestarinnar fellur niður

Frá Ísafirði. Úr myndasafni.
18:22 Fram kemur í tilkynningu frá Háskólalestinni að fyrirlestur um forsetaframboðið sem fara átti fram á Ísafirði í kvöld klukkan 20:00 falli niður vegna þess að öllu flugi frá Reykjavíkur til Ísafjarðar í dag hafi verið aflýst. Meira »

Ólafur mælist með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
18:09 Mikill viðsnúningur hefur orðið í fylgi við forsetaframbjóðendurna Ólaf Ragnar Grímsson og Þóru Arnórsdóttur ef marka niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Capacent Gallup sem greint var frá í fréttum Ríkisútvarpsins. Meira »

Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð

17:49 Talsvert magn af fíkniefnum fannst við húsleit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjallaraíbúð í miðborginni í gær.   Meira »

Bátur fauk á annan bát

Hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í dag.
17:49 Afar hvasst hefur verið á Suðurnesjunum í allan dag og í morgun fauk bátur á annan bát í Grindavíkurhöfn.  Meira »

33 brotlegir ökumenn myndaðir

17:36 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði brot 33 ökumanna í Langarima í Reykjavík í dag en fylgst var með ökutækjum sem ekið var í suðurátt að Rósarima. Meira »

Harður árekstur í Engidal

17:42 Harður árekstur tveggja fólksbíla varð í Engidal í Hafnarfirði, til móts við hús Actavis, skömmu eftir klukkan hálf sex í kvöld. Annar bílinn valt á hliðina við áreksturinn. Meira »

Fylgjast þarf með Krýsuvík

Frá Krýsuvík.
17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Átak gegn ölvunarakstri

Úr safni.
15:29 130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Húsnæði undir veitingarekstur til leigu.
Tilbúinn veitingastaður/bar til leigu á Laugavegi 55, laust strax. Um er að r...
Nýjar 17x7 álfelgur 4-114,3 til sölu.
Flottar felgur. Verð 60 þ. s. 896 3589 haddogg@simnet.is...
NISSAN ALMERA ACENTA
Nissan Almera Acenta, 09/2005, ekinn 97 þús. Ssk., nýtt ...
Til sölu 20ha
Til sölu c.a.20 ha lóð í Biskupstungum. Frábær staðsetning bæði fyrir hestafólk ...
 
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Skólastjóri við grandaskóla
Grunn-/framhaldsskóla
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...
Námsstyrkir - bandalag kvenna í reykjavík

Námsstyrkir Bandalag kvenna í Reyk...