Pósthússtræti lokað vegna góðviðris

Pósthússtræti.
Pósthússtræti. mbl.is/Brynjar Gauti

Pósthússtræti í miðborg Reykjavíkur verður lokað fyrir bílaumferð í dag vegna góðviðris, segir í tilkynningu frá borginni. Spáð hefur verið allt að 17 stiga hita suðvestanlands í dag.

Götunni verður lokað við Kirkjustræti. Lokun á góðviðrisdögum er þáttur í Grænum skrefum í Reykjavík um lifandi og skemmtilega borg, er haft eftir Gísla Marteini Baldurssyni, borgarfulltrúa, í tilkynningunni.

Minnt er á orð danska fræðimannsins og arkitektsins Jan Gehls sem hét fyrirlestur í Reykjavík í vikunni á vegum Félags íslenskra landslagsarkitekta: „Leiðin til að skapa rými fyrir fólk í borgum er að ganga á rými bifreiða og leiðin til að bjarga borg undan bílnum felst í því greiða götu gangandi og hjólandi með áberandi og áþreifanlegum hætti," sagði Jan Gehl.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert