Geir: Ég vil ekki ganga í ESB
Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sagði á opnum fundi í Valhöll í dag, að hann væri ekki í vafa um að þegar vegnir væru kostir og gallar við aðild Íslands að Evrópusambandinu væru kostirnir léttvægari. „Þess vegna vil ég ekki ganga í Evrópusambandið," sagði Geir.
Hann sagði á fundinum að stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar hefði í stórum dráttum gegnið mjög vel. Skoðanamunur væri þó einhver milli flokkanna eins og eðlilegt væri. Þá væri flokkarnir ósammála um eitt stórt mál: Evrópumálin, en Samfylkingin hefði á stefnuskrá sinni að ganga í Evrópusambandið en ekki Sjálfstæðisflokkurinn.
Geir sagði, að ef Ísland væri í Evrópusambandinu hefðu stjórnvöld ekki haft jafn svigrúm til að laga sig að breytingum í alþjóðlegu umhverfi eins og gert hefði verið á síðustu mánuðum. Íslandi væru þá allar bjargir bannaðar við núverandi aðstæður. Þá hefði gengi gjaldmiðilsins verið fast og vextirnir ákveðnir í Seðlabanka Evrópu. Eini vettvangurinn, þar sem svigrúm gæfist, væri á vinnumarkaði, þar sem hægt væri að segja fólki upp og auka þannig atvinnuleysi. „Viljum við það? Ég vil það ekki," sagði Geir.
Hann sagði, að ýmsir kostir fylgdu aðild að Evrópusambandinu en einnig ókostir og þetta yrði að vega og meta og byggja síðan niðurstöðuna á því hvað væri best fyrir Ísland. „Við leggjum á vogarskálar öll atriði sem skipta máli. Í mínum huga er ekkert vafamál að kostirnir eru léttari á þessari vogarskál en gallarnir. Þess vegna vil ég ekki ganga í Evópusambandið," sagði Geir.
Hann sagði það ranghugmyndir, að Íslendingar yrðu einhver áhrifaþjóð innan ESB. Þeir hefðu á grundvelli EES samningsins ákveðna stöðu gagnvart ESB, „en ég held að ef við værum komnir inn í sambandið og sætum við þetta stóra borð yrði lítið hlustað á okkar rödd," sagði Geir.
Hann sagði að nú stæðu yfir breytingar hjá Evrópusambandinu þegar svonefndur Lissabonsáttmáli væri að taka gildi. Hann hefði í för með sér að framkvæmdastjórnarmönnum yrði fækkað og Ísland fengi þá einn slíkan á 5-15 ára fresti ef að líkum lætur. Sagði Geir, að hyggilegt væri að sjá hvernig þessar breytingar verða áður en frekari ákvarðanir yrðu teknar. „Mér finnst þetta mál ekki aðkallandi."
Geir sagði, að sér þætti ýmsir reyna að slá ryki í augun á fólki með því að segja að það væri eitthvað bjargráð að ganga í Evrópusambandið. Ríkisstjórnin væri að vinna í þessum bjargráðum og það væri bjart framundan þrátt fyrir tímabundna erfiðleika nú. „Við þurfum ekki að vera með minnimáttarkennd yfir að vera ekki í Evrópusambandinu," sagði Geir H. Haarde.
Bloggað um fréttina
-
Jón Ingi Cæsarsson Þröngsýni og afturhald. -
-
Haraldur Haraldsson Geir segir/ Eg vil ekki ganga í ESB!!!!!! -
Guðmundur Jónas Kristjánsson Órói í þingflokki Sjálfstæðisflokksins -
Helga Dögg Sverrisdóttir Hans skoðun -
Anna Sigrún Baldursdóttir öhhh ... er þetta frétt? -
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson Hann vill ekki í ESB hann Geir. -
Magnús Helgi Björgvinsson Kæri Geir! -
Hjörtur J. Guðmundsson Geir undirstrikar enn og aftur Evrópustefnu Sjálfstæðisflokksins -
Hannes Friðriksson Gott að vita hvað Geir vill. -
Guðrún Sæmundsdóttir ESB lélegur afréttari skuldafyllerís -
Eyjólfur Jónsson ESB -
Runólfur Jónatan Hauksson Hver ræður? -
Jón Finnbogason Valkostir? -
Björn Heiðdal 10 staðreyndir um ESB. -
Guðbjörn Guðbjörnsson Er Geir á öndverðum meiði við meirihluta sjálfstæðismanna ? -
Brjánn Guðjónsson Krónan undir grænni torfu -
Ívar Andersen Ísland hornreka í Evrópusambandinu! -
Stefán Friðrik Stefánsson Geir talar mjög afgerandi gegn ESB-aðild -
Björgvin Guðmundsson Geir: Vil ekki ganga í ESB -
-
Guðrún Emilía Guðnadóttir Skoðun Geirs aftan úr fornöld. -
Sigríður Laufey Einarsdóttir ESB- sinnar sporgöngumenn Gissurar jarls!?
Innlent »
- Úrslitakeppnin hafin í Hörpu
- Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka
- Fjör á 112-deginum á Húsavík
- Hvessir af suðri seint í kvöld
- Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti
- Ekki hika – hringdu til öryggis
- Möguleikar nýju framboðanna
- Enginn flótti af Y-lista
- Iðnaðarmaður ræsti brunaboða
- Búðaþjófur ógnaði starfsmanni
- Börn grétu vegna útigangsmanna
- Fangar reyna oft að ná í fíkniefni
- Slökkt á meðan Kolaportið er opið
- Skjálftahrina við Grímsey
- Öskureið út í Pál Óskar
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
Föstudagur, 10.2.2012
- Vandi stjórnarinnar gerður að vanda fjórflokksins
- Ökumenn í vanda vegna hálku
- Hestar sluppu eftir bílveltu
- Nokkrir skjálftar í kvöld
- Snjóar í höfuðborginni
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 21. janúar 2009, Innlent Geir taldi sér ógnað
- Fimmtudagur, 12. febrúar 2009, Innlent Geir: Biðst ekki afsökunar
- Miðvikudagur, 27. febrúar 2008, Innlent Geir: Einhliða upptaka evru gæti þýtt pólitíska erfiðleika
- Þriðjudagur, 26. febrúar 2008, Innlent Juncker: Einhliða upptaka evru ekki skynsamleg
- Föstudagur, 16. janúar 2009, Innlent Skiptar skoðanir um ESB-aðild
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
-
Yrði ōðruvísi biskup
-
Lík Houston flutt af hótelinu
-
Whitney Houston látin
-
Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið
-
Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli




































