Skipuð forstjóri Varnarmálastofnunar
Utanríkisráðherra hefur í dag skipað Ellisif Tinnu Víðisdóttur forstjóra Varnarmálastofnunar til fimm ára frá og með 1. júní nk. en þann dag tekur stofnunin formlega til starfa.
Verkefni Varnarmálastofnunar eru m.a. rekstur íslenska loftvarnakerfisins, þátttaka í samræmdu loftrýmiseftirliti og loftrýmisgæslu NATO, rekstur, umsjón og hagnýting öryggissvæða og mannvirkja, undirbúningur og umsjón varnaræfinga hérlendis, þátttaka í starfi nefnda og undirstofnana NATO, verkefni sem varða framkvæmd varnarsamningsins, samstarf við alþjóðastofnanir og framkvæmd alþjóðasamþykkta á sviði varnarmála, ráðgjöf til utanríkisráðuneytisins og samstarf við háskóla og alþjóðleg samtök.
Samhliða því að Varnarmálastofnun tekur til starfa 1. júní verður Ratsjárstofnun lögð niður. Ellisif Tinna hefur þegar tekið sæti í starfshópi utanríkisráðherra sem undirbýr gildistöku varnarmálalaganna og upphaf starfa Varnarmálastofnunar. Starfshópurinn ber m.a. ábyrgð á að framkvæma bráðabirgðaákvæði við varnarmálalögin þar sem kveðið er á um að öllu starfsfólki Ratsjárstofnunar á uppsagnarfresti skuli boðin störf hjá Varnarmálastofnun.
Ellisif Tinna er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur að auki BA gráðu í mannfræði frá sama skóla. Ellisif Tinna hefur verið aðstoðarlögreglustjóri hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum frá stofnun þess embættis og var staðgengill sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli frá 2004. Þar á undan vann hún sem löglærður fulltrúi hjá því embætti frá námslokum og átti sæti í yfirstjórn þess allan þann tíma.
Hún var breytingarstjórnandi hjá Ratsjárstofnun um ríflega tveggja mánaða skeið sl. haust og hefur auk þess mikla reynslu af samskiptum við samstarfslönd innan NATO.
Bloggað um fréttina
-
Guðbjörn Guðbjörnsson Vel komin að þessari stöðu! -
Brjánn Guðjónsson Nýr forstjóri Varnarmálastofnunar -
Daði Þorkelsson Til hamingju E. Tinna -
Sæmundur Bjarnason Það hlýtur bara að hafa orðið einhver hasar útaf þessu -
Anna Karlsdóttir Tinna vel að starfinu komin -
Snorri Bergz Vonbrigði fyrir Stefán Páls -
Haukur Nikulásson Þið hljótið að vera að grínast? -
Jóhannes Ragnarsson Aumingja blessuð manneskjan -
Helgi Jónsson Varnarmálastofnun
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 11. mars 2009, Innlent Varnarmálastofnun hefur boðið samstarf
- Föstudagur, 18. apríl 2008, Innlent Forstjórastaða til umsóknar
- Sunnudagur, 1. júní 2008, Innlent Varnarmálastofnun Íslands tekin til starfa
- Þriðjudagur, 6. maí 2008, Innlent 25 sóttu um embætti forstjóra Varnarmálastofnunar
- Föstudagur, 7. nóvember 2008, Innlent Varnarmál og öryggi landsins ekki gæluverkefni góðærisins
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































