Telur álit Skipulagsstofnunar stóran áfangasigur
„Ég er alsæl,“ sagði Lára Hanna Einarsdóttir, sem staðið hefur fyrir baráttu gegn áformum um Bitruvirkjun. Skipulagsstofnun lýsti því yfir í dag, að bygging Bitruvirkjunar væri ekki viðunandi vegna verulegra neikvæðra og óafturkræfra áhrifa á landslag, útivist og ferðaþjónustu.
Þá segir í áliti Skipulagsstofnunar að fyrirhuguð Bitruvirkjun myndi breyta landslagsásýnd þessa lítt raskaða svæðis í ásýnd iðnaðarsvæðis. „Við erum svo sammála ég og Skipulagsstofnun,“ sagði Lára Hanna í samtali við mbl.is.
Að mati Láru Hönnu eru þetta bestu mögulegu fréttirnar og lítur hún á niðurstöðuna sem stóran áfangasigur. „Þetta er bara álit þar sem Skipulagsstofnun er bara álitsgjafi en ekki úrskurðaraðili. Næstu skref finnst mér að ættu að vera annarsvegar að Orkuveita Reykjavíkur taki sig saman í andlitinu og hætti við,“
Einnig finnst Láru Hönnu nauðsynlegt að breyta aðalskipulagi sveitarfélagsins Ölfus því þrátt fyrir að Orkuveitan myndi hætta við þá gæti annar aðili komið þarna inn og virkjað.
Láru Hönnu finnst rökin sem Skipulagsstofnun kemur með í skýrslu sinni gríðarlega sterk. „Ef ekki verður hlustað á þessi rök hvar erum við þá á vegi stödd?“. Hún segir þó að hún sé mun bjartsýnni í dag en í gær. „Öll skynsemi og öll rök segja að þetta eigi ekki að gerast. Það á ekki að virkja þarna.“
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 20. maí 2008, Innlent Stjórnarfundur stendur yfir hjá OR
- Mánudagur, 19. maí 2008, Innlent Fagnar úrskurði Skipulagsstofnunar
- Mánudagur, 19. maí 2008, Innlent Álit um virkjanir yfirfarin
- Mánudagur, 26. maí 2008, Innlent Segir Skipulagsstofnun hafa farið út fyrir hlutverk sitt
- Þriðjudagur, 20. maí 2008, Innlent Hætt við Bitruvirkjun
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju





































