Ný flugbraut á Sandskeiði

Svifflugvél dregin á loft á Sandskeiði.
Svifflugvél dregin á loft á Sandskeiði. mbl.is/Sigurður Jökull

Ný flugbraut verður tekin í notkun á Sandskeiði í dag. Endurbætur hafa farið fram á flugvellinum um nokkurt skeið en opnunin er er liður í áætlunum Flugstoða að bæta þjónustu við kennslu- og einkaflug.

Í tilkynningu frá Flugstoðum segir, að vélflugbraut flugvallarins verði opin öllu kennslu- og æfingaflugi ásamt einkaflugi vélknúinna loftfara. Opnun flugbrautarinnar sé einnig liður í áætlunum Flugstoða að létta álagi og draga úr hávaðamengun Reykjavíkurflugvallar.

Flugbrautin opnar nýja möguleika fyrir æfingaflug flugnema en á Sandskeiði hefur verið unnið að mikilli uppbyggingu, m.a. endurbótum á flugbraut og uppsetningu á veðurstöð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert