Bíllinn ólæstur og lykillinn á milli framsætanna

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir, að karlmaður á þrítugsaldri hafi vart trúað sínum eigin augum þegar hann kom á bílaastæði í miðborg Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags og fann ekki bílinn sinn.

Maðurinn, sem er af erlendu bergi brotinn, hélt rakleitt á lögreglustöð og sagði farir sínar ekki sléttar. Þar var hann spurður nánar um málsatvik og varð þá ljóst að bílnum hafði verið stolið. Bíllinn reyndist bæði hafa verið ólæstur og svo var bíllykillinn geymdur á milli framsætanna.

Maðurinn sagðist ávallt hafa haft þennan háttinn á þann tíma sem hann hefði haft bíl til umráða á Íslandi og hefði átt von á öllu öðru en þessu og hefði  bókstaflega ekki trúað því að svona lagað gæti gerst á Íslandi. Honum var bent á að framvegis væri betra að læsa bílnum og hafa bíllykilinn ekki í augsýn. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert