Kaffiþyrstir þjófar

Nokkur innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina en í þremur þeirra höfðu þjófarnir verkfæri á brott með sér. Verkfærunum var stolið úr tveimur vinnuskúrum og einum bíl en svo virðist sem hina óprúttnu aðila hafi líka þyrst í kaffi. Nokkrar kaffipakkningar hurfu líka úr öðrum vinnskúranna sem og mjólk sem var geymd í ísskáp á sama stað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert