Hátíð hafsins á Austurlandi

Varðskipið Týr tók þátt í hópsiglingu á Eskifirði.
Varðskipið Týr tók þátt í hópsiglingu á Eskifirði. mbl.is/Helgi

Hátíð hafsins er um helgina. Á Austurlandi hafa skip siglt um firði með þá sem vilja fara í siglingu, þar á meðal bæði á Fáskrúðsfirði og Eskifirði.

Skip Loðnuvinnslunnar sigldu um Fáskrúðsfjörðinn. Margir skemmtibátar voru einnig í siglingunni að þessu sinni svo allnokkuð er síðan að þátttaka í siglingunni hafa verið jafn góð.

Á Eskifirði tók varðskipið Týr þátt í hópsiglingu en síðan hófst kappróður, reiptog, belgjaslagur og fleiri hefðbundnar sjómannadagsgreinar. Aðalhátíðin verður þó á morgun.

Skip Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði sigldu um fjörðinn skreytt fánum.
Skip Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði sigldu um fjörðinn skreytt fánum. mbl.is/Albert Kemp
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert