Ölvaðir úti að aka

Bíll valt á Vatnsleysustrandarvegi um klukkan 22 í gærkvöldi. Hafði ökumaðurinn misst stjórn á bílnum sem fór á hvolf. Lögreglan handtók bæði ökumann, sem grunaður er um ölvun við aksturinn, og farþega, sem einnig var ölvaður. Gista þeir fangageymslur lögreglunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert