Drengur enn sofandi í öndunarvél

Drengurinn sem brenndist í sprengingu í húsbíl í Grindavík á föstudagskvöldið er enn þungt haldinn. Honum er haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild.

Drengurinn, sem er á þriðja ári, var með afa sínum í húsbílnum þegar slysið varð og slasaðist maðurinn, sem er á sjötugsaldri, einnig, en þó ekki alvarlega. Drengurinn brenndist einkum á höfði og höndum.

Fimm ára gömul stúlka sem flutt var á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi í síðustu viku, eftir að hafa hlotið alvarlega höfuðáverka við veltu sexhjóls, er á góðri bataleið, samkvæmt upplýsingum frá lækni á Landspítalanum. Stúlkan var útskrifuð um helgina yfir á Barnaspítalann. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert